PAYPER, FRAMKVÆMDU.UPPLIFÐU.FLJÚGÐU. Á ÁBYRGAN HÁTT

Framkvæmdu til að skapa / Upplifðu til að deila /
Fljúgðu til að dreyma: þetta eru gildin sem knýja Payper-samstæðuna og sem
finna má í öllu framleiðsluferlinu. Það að hafa þekkinguna til að búa til nýjar
vörur, deila þessu með öðrum og dreyma um nýja framtíð með erfiðari áskorunum
er markmið fyrir alla sem uppfyllt er þökk sé jákvæðu og ábyrgu framlagi alls
fólksins og samstarfsaðilanna sem eiga þar þátt. Þess vegna hefur Payper um
langt skeið lagt ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og á að
baki langa og árangursríka vegferð sem hefur skilað fjölda alþjóðlegra vottana
á gæðum vöru og bestu starfsvenjum, í því skyni að tryggja gæði, sjálfbærni og
gott siðferði í allri sinni starfsemi. Þetta gerir okkur

kleift að hafa virðingu og hagsmuni nærsamfélagsins á hverjum stað að
leiðarljósi, en einnig að vernda náttúruauðlindir til að komandi kynslóðir fái
einnig notið þeirra.

 

 

SJÁLFBÆRNISKÝRSLA
Sjálfbær þróun er eitt af grunngildum og markmiðum Industrial Wear. Til marks um vilja okkar til að sýna gegnsæi í allri okkar starfsemi höfum við deilt sjálfbærniskýrslunni með öllum hluthöfum okkar, en þar eru þær aðgerðir sem fyrirtækið hefur gripið til og árangur þeirra tilgreind.

 
 
 

PAYPER, VAL Á OG VÖKTUN FRAMLEIÐSLUSAMSTARFSAÐILA

Payper-samstæðan vinnur eingöngu með birgjum og
framleiðendum sem valdir hafa verið með í áranna rás með því að nota tvíþætt
mat: Annars vegar á gæðum vörunnar sem þeir framleiða og hins vegar metnaði
þeirra á sviði samfélagslegrar ábyrgðar og góðra starfsskilyrða. Tæknilegar skrifstofur
okkar hafa stöðugt eftirlit með þessu, með beinum og milliliðalausum úttektum
óháðra alþjóðlegra stofnana, sem tryggja að framleiðendur standist þau ströngu
skilyrði sem mælt er fyrir um í vottunum sem Payper gerir kröfu um.

 

 
 
ISO45001 LogoSA8000 LogoOEKO-TEX LogoAMFORI Logo
 

PAYPER, 100% SIÐFERÐILEG FRAMLEIÐSLA, 0% SKAÐLEG EFNI

Markmið fyrirtækisins til komandi ára er að allar
flíkurnar sem við framleiðum verði unnar úr vottuðum hráefnum í
framleiðslukeðju sem við höfum fulla stjórn á, allt frá grunnhráefnum til
framleiðsluferla og endanlegrar vöru. Nú þegar tryggir þátttaka fyrirtækisins í
áætlun um enga losun hættulegra íðefna (e. Zero Discharge of Hazardous
Chemicals) að öll framleiðsla Payper sé innan þeirra marka sem evrópska REACH
reglugerðin setur (EB nr. 1907/2006) sem skráir, metur, heimilar og takmarkar
notkun á íðefnum. Við munum enn fremur kynna nýjar vörulínur með stuttermabolum og peysum úr bómull sem er framleidd samkvæmt sjálfbærniviðmiðum sem kveðið er á um af óhagnaðardrifnu samtökunum Better Cotton, en markmið samtakanna er að gera bómullarframleiðslu á heimsvísu sjálfbærari fyrir umhverfið og fólkið sem tekur þátt í framleiðsluferlinu.

 

PAYPER, MINNI UMHVERFISÁHRIF

Payper hópurinn hefur innleitt valkosti til að draga
úr losun CO2: höfuðstöðvar okkar eru að öllu leyti knúnar af endurnýjanlegri
(sólar) orku
 og við höfum valið nýjustu kynslóð flutnings-, flug- og
siglingafyrirtækja sem leggja áherslu á að lágmarka orkunotkun og
umhverfisáhrif.

 

 

UMHVERFISMERKING:
ENDURVINNSLA ER FYRSTA SKREFIÐ Í ÁTT AÐ VERNDUN JARÐARINNAR

Endurvinnsla! Rétta leiðin er stafrænt rými sem var þróað til að leiðbeina
viðskiptavinum um rétta förgun á umbúðum og pökkunarefni frá Payper. Við
höfum frá upphafi lagt áherslu á umhverfismál og nú hefur fyrirtækið einnig
tekið sín fyrstu skref hvað varðar umhverfismerkingar, með það fyrir augum að
uppfylla skilyrði í innlendum og evrópskum tilskipunum, en þó einkum vegna þess
að við erum sannfærð um með sameiginlegri skuldbindingu getum við náð fram
breytingum!

 

 
 

PAYPER, VELLÍÐAN OG MENNING

Fólk og velferð samfélagsins er kjarninn í ábyrgri sýn
Payper-samstæðunnar, sem hefur ávallt lagt áherslu á jöfn tækifæri,
fjölmenningu og heilsuvernd og vellíðan starfsmanna og fjölskyldna þeirra
.
Á hverju ári styrkir fyrirtækið, með frjálsum framlagssjóði, margs konar
verkefni sem tengjast menntun, þjálfun og sérhæfðri heilbrigðisþjónustu
.
Fyrirtækið hefur einnig lánað tækjabúnað í þágu verkefna sem tengjast
almenningi og samfélagi, svo sem vísindaleiðöngrum, mannúðaraðstoð gegnum Rauða
krossinn á hamfarasvæðum og íþróttaviðburðum, í því skyni að efla vitund um
forvarnir og rannsóknir í læknisfræði.