Draumurinn fer á flug
Árið 1958 hitti ég þetta
frábæra barn
sem dreymdi um að verða flugmaður,
meðan það smíðaði flugvélamódel og skrúfurnar þeirra.
Hann byrjaði að fljúga
léttum flugvélum vegna þess að hann heillaðist
af töfrum flugsins og lifði fyrir
frelsistilfinninguna sem flugið veitti honum, og með því drauminn um að
uppgötva
og skoða heiminn.
Hann fann köllun sem flugmaður
listflugvéla
og varð síðar meir heimsþekktur í flugvélaiðnaðinum.


Hugmyndin mótast.
Einn góðan veðurdag varð
hræðilegur eldsvoði í litlu fjallaþorpi
og hann var beðinn um að reiða fram aðstoð sína.
Verkefnið var stórhættulegt
en ævintýraþráin í brjósti hans knúði hann áfram.
Hann flaug yfir jaðar eldanna, slökkti þá og
þorpsbúar fögnuðu frelsinu á ný.
Síðan hafa liðið mörg ár og
tilraunastarfsemin og áhættuhegðunin heyra nú minningabókinni til,
en hann heillast enn af frelsi og draumum
og flýgur, af sömu ástríðu og forðum, stærstu
flugvélunum sem
svífa um himinhvolfin, til að kanna ný svæði og nema ný lönd.
Þess vegna er
Payper-vörumerkið, með merkinu sem minnir á flugvélarhreyfil,
tákn fyrir draum hans um töfra og
frelsi.

Vörulistinn er í sífelldri þróun.
Allt starfsfólk fyrirtækisins
fær fullt frelsi til að tjá sig á sinn eigin hátt
, bæði í vinnu- og frítíma.