Nýstárleg og hagnýt hönnun
VERKEFNI OKKAR
ERU ÓYGGJANDI LAUSNIR
Hugmyndafræði
okkar byggist á þremur grundvallaratriðum: sköpun, rannsóknum og gæðum.
Áðurnefndir
þættir ásamt ástríðu og natni við smáatriði eru meginþungi framleiðsluferlisins
og hafa skotið föstum rótum í höfuðstöðvum okkar hér á Ítalíu.


Hönnunar- og rannsóknarstofa
gefur okkur forskot
Skapandi
hugmyndir hefja sig á loft á hönnunar- og frumgerðarskrifstofu okkar og fljúga
síðan yfir á rannsóknarstofuna, þar sem sérfræðingar í iðnhönnun greina og
velja besta efnið m.t.t. viðnáms, endingar, sveigjanleika og hvort það uppfylli
mikilvæga alþjóðlega staðla.
Stöðug
leit að afburðagæðum stjórnar ákvarðanatöku fyrirtækisins á hverjum degi og
löngunin til að skapa framúrskarandi vinnu-, fyrirtækja- og almennan fatnað.
Fyrirtækið
hefur skuldbundið sig til að finna bestu gæðin og þar af leiðandi eru vörur í
framleiðslulínum þess frumleg, hagnýt og þægileg vegna þess að natni við
smáatriðin skapar einstakt og auðkennandi útlit.
