DO. TO CREATE.
BE. TO SHARE.
FLY. TO DREAM.

Hæfileikar, skuldbinding og ástríða koma hlutunum á hreyfingu.
Næmi, virðing, samnýting hjálpa okkur að lifa lífinu.
Hugmyndir, verkefni, draumar koma okkur á flug. Það eru grundvallaratriðin sem fyrirtækið hefur að leiðarljósi á hverjum degi við þróun hlífðarfatnaðar fyrir fólkið og umhverfið. Fagkunnátta er mikils metin og dyggilega studd innan fyrirtækisins. Við leitum stöðugt nýstárlegra lausna og leggjum áherslu á teymisvinnu í samstarfi við utanaðkomandi aðila, til að slíkir aðilar geti tileinkað sér nálgun okkar sem meðvitað og ábyrgt fyrirtæki.

 

 

DO. TO CREATE.

Hæfileikar, skuldbinding, ástríða.

Innblástur við dagleg störf okkar er veruleikinn sem umlykur okkur og fólkið sem við eigum í samskiptum við. Þau knýja okkur áfram og hvetja til að gera betur hverjum degi og leita lausna í fremstu röð. Ástríðan slær taktfast í störfum okkar og myndar neistann að nýjum, einstökum og eftirsóknarverðum sköpunarverkum. Ósk okkar er að einkennismerki okkar og arfleifð í framtíðinni verði þessi stöðuga viðleitni okkar við að auka gæðin.

 
 

BE. TO SHARE.

Næmi, virðing, samnýting.

Hver einasta flík fyrirtækisins er ósvikin tjáning og táknmynd um hver við erum og allt sem við trúum á. Að lifa ósviknu lífi, standa þétt við gildi einstaklingsins og vernda nærumhverfið eru grundvallaratriðin sem gera okkur kleift að mynda tengsl, deila hugmyndum, markmiðum við hvert skref sem við tökum. Sýn okkar nær yfir allt samfélagið og bindur okkur saman órjúfanlegum böndum. Ef við sýnum öllum virðingu og metum alla að verðleikum getum við vaxið og náð nýjum og mikilvægum markmiðum.

 

FLY. TO DREAM.

Hugmyndir, verkefni, draumar.

Skrúfumerki Payper er vel þekkt og er táknmynd ljúfmennsku og frelsis. Hugmyndir okkar og ástríða eru drifkraftur ósvikinna drauma. Drauma sem hægt er að uppfylla þökk sé viljafestu og orku fólksins sem gera vegferð okkar mögulega. Allir verða að leggja sitt á plóginn til að hægt sé að ná nýjum og ögrandi hæðum í sameiningu. Skrúfan er táknmynd drauma okkar um að skapa afkastameiri, öruggari og stílhreinni fatnað í nútímalegum stíl.