Better Cotton

Fyrir sjálfbærari framtíð!

Fyrirtækið hefur sjálfbærni að leiðarljósi og hefur því gengið í Better Cotton-samtökin og fylgir áætlun þeirra með stolti. Fyrirtækið notar einna mest bómull í fatalínur sínar og velur hana af kostgæfni. Better Cotton eru alþjóðleg samtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni og þau halda úti stærstu sjálfbærniáætlun fyrir bómullarframleiðslu í heiminum. Markmiðið er að hjálpa samfélögum sem framleiða bómull að halda velli og þrífast vel með því að vernda og endurheimta umhverfið. Samtökin halda úti nýsköpunarsjóði fyrir landbúnaðarsamfélög og nota aðildargjöldin til að mæta vinnutengdum áskorunum sem algengar eru í landbúnaði. Markmiðið er að bómullarræktun verði sífellt sjálfbærari.

Árið 2023 var 30% af bómull í fatnaði okkar úr Better Cotton-áætluninni.


Markmið okkar árið 2024 er að ná 100% framleiðslu með Better Cotton.

 

7 helstu grundvallarreglur

Til að ná þessu markmiði stendur Better Cotton fyrir framtaksverkefnum fyrir bændur sem byggja á sjö grundvallarreglum:

1. Verndun uppskeru

Nota heldur aðrar aðferðir og hætta notkun skordýraeiturs.

2. Sjálfbær notkun vatns

Aðstoða við innleiðingu ábyrgra áveituaðferða.

3. Heilbrigður jarðvegur

Hjálpa til við að bæta ræktunatækni til að ná ríkulegri uppskeru.

4. Líffræðileg fjölbreytni

Fylgja sérstakri áætlun um að lagfæra og vernda náttúruleg búsvæði.

5. Uppskera, geymsla og flutningur

Styðja við bakið á bændum við að tileinka sér skilvirkari kerfi.

6. Mannsæmandi vinnuskilyrði.

Markmið okkar er að stuðla að velsæld bænda og samfélaga þeirra.

7. Árangursríkt stjórnunarkerfi
Við fjárfestum í símenntum bænda og úrbótum ræktunaraðferða í landbúnaði.