Pop your style with color
Kynntu þér nýju Headwear and Bags-vörulínurnar
Litagleði og
líflegar vörur sem grípa augað. Nýju línurnar skarta einkennandi stíl.
Derhúfur, húfur, hálsskjól, bakpokar og töskur henta annríki fjölbreytta
borgarlífsins og eru sérstaklega hugsuð fyrir unga fólkið sem er að stíga sín
fyrstu skref í stóra heiminum.
Headwear
and Bags skiptast í tvo einstaka flokka sem tilheyra einum og sama stílnum. ONHEAD eru mismunandi tegundir af
derhúfum, sem hafa mismunandi fjölda af flötum og ýmis notagildi, en líka húfur
sem henta köldu veðri og nota þarf með litríkum hálsskjólum.


DAYPACK er
hugsað fyrir ferðafólk, íþróttafólk, nemendur, hópa og alla sem þurfa hagnýtan
og auðþekkjanlegan fylgihlut til að halda skipulagi á og bera það allra
nauðsynlegasta.
ONHEAD- og DAYPACK-vörur
eru ekki bara fylgihlutir heldur lýsa einkennum þeirra sem nota þær.
Í
bæklingnum má sjá fallega litapallettu með til dæmis grænum, rauðum, bláum,
bleikum og gulum litum sem saman glæða form og efni lífi, auk þess sem finna má
ýmis smáatriði sem gefa einstakt yfirbragð. Hver hlutur stuðlar að því að
fínpússa og sérsníða einkennisbúninga og hversdagsföt þannig að hvert og
eitt geti látið sköpunargleði sína og persónuleika skína í gegn.
Litir sem sýna stílinn, fylgihlutir sem sýna persónuleikann.
Vörulínurnar
Headwear & Bags eru nýjar útfærslur af sígildum fylgihlutum eins og
húfum og bakpokum sem hafa verið „poppaðir upp“ og sýna að stíll er ekki bara
val á útliti heldur einnig tjáning á orku, persónuleika og einkennum.
Skoðaðu vörulínurnar og kynntu þér hvernig þú getur látið stílinn skína í
gegn.

