Bómull Payper verður sífellt sjálfbærari
Ólíkt
hefðbundnum aðferðum er lífrænt ræktuð bómull umhverfisvænn og ábyrgur kostur. Notað er 91% minna vatn við slíka framleiðslu og
þannig dregið verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Hefðbundnar
ræktunaraðferðir eru ekki lengur skynsamlegar vegna þess að slíkar aðferðir
nota hátt hlutfall ræktunarlands, meira en 24% af plágueyði og 11% af
skordýraeitri veraldarinnar, en slíkt hefur neikvæð áhrif á fólk sem starfar í
landbúnaði, jarðveginn og er sóun á vatni.
Notkun lífrænnar ræktunar í landbúnaði á náttúrlegum trefjum virðist því vera rétta aðferðin og sjálfbært svar við áðurnefndu vandamáli. Þess vegna hefur Payper á undanförnum árum stutt ábyrgt framleiðsluferli þar sem nýttar eru nýjar ræktunaraðferðir sem hafa jákvæð áhrif á umhverfið og nærsamfélög.
MEÐLIMUR PAYPER UM BETRI BÓMULL
Allt frá árinu 2022, hefur Payper
verið stoltur aðildarfélagi að Better Cotton, en það er stærsta áætlun um
sjálfbæra bómullarræktun í veröldinni. Markmiðið
er að gera aðfangakeðju bómullar skilvirkari á heimsvísu, styðja við ábyrga
ræktunar- og áveituaðferðir, auk þess að styðja við mannsæmandi vinnuskilyrði
og árangursrík stjórnunarkerfi.

PAYPER FOR GOTS
Á árinu
2023 náði Payper öðrum mikilvægum áfanga, en vörur fyrirtækisins hlutu GOTS-vottun (ens. Global Organic Textile Standard). Þetta er
alþjóðleg viðurkenning skv. mikilvægasta gæðastaðli textílefna í veröldinni.
Vottunin er líka staðfesting þess að umhverfis- og samfélagslegum viðmiðum sé
fylgt við allt framleiðsluferlið.

HVERNIG ER HÆGT AÐ LÁTA FATNAÐ ENDAST LENGUR?
Umhirða
bómullar er nauðsynleg til að viðhalda gæðum. Til að tryggja þetta skaltu
fylgja nokkrum einföldum ráðum:
- Fylgdu táknum á þvottaleiðbeiningum;
- Þvottur: Notaðu stillingu fyrir viðkvæman þvott til að viðhalda lögun og lit fatsins;
- Þvoðu á röngunni: til að vernda ytra borð efnisins og varðveita jafnvel skærustu litina;
- Notaðu viðkvæm hreinsiefni: til að forðast skemmdir á bómullartrefjum;
- Þurrkun: Forðastu að þurrka flíkur við háan hita og hafa þær í sólarljósi, til að koma í veg fyrir rýrnun og litatap. Æskilegt er að þurrka flíkurnar undir berum himni til að viðhalda mýkt þeirra;
- Straujun bómullar: Slíkt er gert við lágan hita að brenna ekki trefjarnar og bleytt er upp í fatnaðinum áður en hann er straujaður til að nota ekki of mikinn þrýsting og koma í veg fyrir krumpumyndun,
- Geymdu hlutina rétt og notaðu herðatré fyrir skyrtur og jakka.










