Umbúðir Payper: Minnka, endurnota, endurnýta
Payper fer óhefðbundnar leiðir
við gerð og hönnun umbúða. Fyrirtækjum í fataiðnaði hættir til að sóa efnum en Payper hefur
skuldbundið sig til að leita á hverjum degi skilvirkra og sjálfbærra lausna til
að draga á markvissan hátt úr umhverfisáhrifum. Notkun
brautryðjandi tækni hefur í reynd aukist á síðustu árum og dregið hefur
verulega úr notkun plastumbúða.
Markmið Payper er að auka
sjálfbærni. Aðal- og viðbótarumbúðir fyrirtækisins samanstanda aðallega af
pappír, pappa, bylgjupappa og plasti, allt eftir gerð og notkunarsviði varanna.
Fyrirtækið leitar sífellt endurbóta og notar helst sjálfbærar
umbúðir, sér í lagi pappa, en það er efni sem er auðveldast að endurnýta við
afgreiðslu nýrra pantana. Í reynd var 84% af öllum pappa í verksmiðju okkar
árið 2023 endurnýttur í umbúðir.
Breytingar í þessum anda voru
innleiddar árið 2024 þegar framleiðsla hófst á PAYPER PLUS-hönskunum, en
umbúðirnar voru 100% úr pappír og pappa (án plasts).
Hanskarnir eru markaðssettir á stjóru spjaldi sem er komið fyrir í
sýningarkassa. Hanskarnir eru síðan fluttir í pappaumbúðum sem er lokað aftur
með EcoHIT19-límbandi, en límbandið er framleitt úr a.m.k. 85% endurunnu
plasti. Hér er um að ræða mikilvægt framtak sem fyrsta skrefið að sjálfbærri
framleiðslu í framtíðinni. Markmiðið er að hvetja til notkunar umbúða
sem er auðvelt að endurnýta, hafa minni umhverfisáhrif og er hægt að
endurvinna í því skyni að koma í veg fyrir efnissóun.

Hvað ábyrgari stjórnun varðar hefur Payper
ákveðið að draga úr notkun plastumbúða. Þar af leiðandi pakkar
fyrirtækið vörum í stakan plastpoka þegar slíku er við komið. Markmið
fyrirtækisins á komandi árum er að öllum vörum verði pakkað í umbúðir úr pappa
eða endurunnu plasti.










