Hvað einkennir Payper 's Horeca fatnaðinn?

Hæfni, falleg snið og framúrskarandi gæði einkenna nýju Horeca-línuna frá Payper. Breitt úrval af jökkum, buxum og svuntum sem má raða saman á fjölbreyttan máta til að skapa nýja einkennisbúninga sem hæfa skapgerð kokka og annarra fagmanna Horeca. Hver vara er niðurstaða ítarlegra stílrannsókna þar sem haglega hönnuð smáatriði veita ósvikna upplifun.

 

 Opnunarkerfi jakkans kallast Lockable Rever og er auðþekkjanlegt. Það er einkaleyfaskráð og gerir kokkum kleift að fletta jakkanum frá þegar heitt er án þess að flíkin hefti hreyfingar eða missi glæsilegt og snyrtilegt útlit sitt.

EFNIÐ SEM GERIR GÆFUMUNINN

Stíllinn er undirstrikaður með efnisvalinu sem fegrar hönnunina og svarar tilteknum þörfum. Lycra T400-trefjarnar teygjast og halda lögun sinni vel og fullkomin samsetning Coolmax-tækni og sérvalinnar, sjálfbærrar bómullar gefa góða öndun

 

LYCRA®, T400® and COOLMAX® are trademarks of The LYCRA Company

 

Payper er stolt af því að Horeca-fatnaðurinn innihaldi hlutfallslega mikið af bómull, eða meira en 58% í öllum fatnaði. Slíkt ásamt vali á ofnu efni gefur fatnað sem hefur frábæra öndunareiginleika og er afar þægilegur.

 
 

Ripstop er einnig fyrir Horeca

Ítarleg rannsókn var gerð á uppbyggingu efnisins. Fyrirtækið hefur ákveðið að bjóða Horeca-vörulínuna fyrsta sinn úr hefðbundu Twill-efni en einnig tilteknar vörur úr Ripstop. Fyrirtækið gerir slíkt til að uppfylla þarfir notenda eða væntanlegar þarfir notenda. Payper vildi sérstaklega svara óskum um óheftar hreyfingar og býður því teygjanlegan og þægilegan fatnað sem er á sama tíma fágaður og hefur fallegt snið.

 

Ólíkur stíll

Jakkar, buxur og svuntur með fáguðu sniði sem hafa yfir sér einstakt yfirbragð. Hin fræga Payper-bót er á hverjum jakka og er með hagnýtu pennahólfi. Jakkarnir eru í boði með ólíkum gerðum af ermum og fást m.a. með skyrtuermum, ermum sem má rúlla upp, eða stuttum ermum með faldi. Önnur séreinkenni eru m.a. ofið efni með eða án mynsturs, klaufar á hliðum til að hreyfa sig óhindrað og mismunandi gerðir af tölum. Vörulínan býður einnig upp á jakka með rennilás.

Buxurnar eru einnig í fáguðum stíl, þó sér í lagi fataefnið og hin einstöku smáatriði. Notendur geta valið sér fatnað eftir þörfum og útlitinu sem óskað er eftir, allt frá rennilás eða tölum eða mittisreim eða skálmum með teygjum eða jafnvel enn glæsilegri útgáfu með tveimur földuðum vösum.
Gómsætu svunturnar okkar fást með smekk eða í frönskum stíl og allar eru með vösum og sumar svunturnar eru úr 500D Oxford-næloni með geymsluvasa fyrir viskustykki.

 
 

 

Aðrar blogggreinar