GOTS - Alþjóðlegur staðall um lífrænt ræktuð textílefni
GOTS-staðall um lífræn
textílefni (ens. Global Organic Textile Standard) er alþjóðlegur
staðall ábyrgrar og sjálfbærrar framleiðslu fatnaðar og textílefnis úr
lífrænt ræktuðum, náttúrlegum trefjum eins og t.d. bómull og ull.

GOTS gerir kröfur varðandi
vistræn og félagsleg skilyrði við framleiðslu náttúrlegra fataefna með lífrænt
ræktuðum hráefnum sem verður uppfylla í gegnum alla aðfangakeðjuna. Lífrænt
ræktuð framleiðsla verður að byggjast á landbúnaðarkerfi sem styður við og
endurheimtir frjósemi jarðvegsins án þess að nota skordýraeitur og tilbúinn
áburð. GOTS tilgreinir einnig staðla um vernd dýra og bann við notkun
erfðabreyttra lífvera sem verður að fylgja.
Þegar fyrirtæki hljóta GOTS-vottun batnar samkeppnisstaða þeirra á stærstu
mörkuðunum og neytendur eru um leið hvattir til að taka upplýstar ákvarðanir
við vörukaup.
PAYPER FOR GOTS
Payper hefur
uppfyllt GOTS-staðalinn í því skyni að framleiða
fatnað á sjálfbæran hátt og nota meira af lífrænt ræktuðum efnum frá
stýrðum, lífrænt ræktuðum aðfangakeðjum.
Fyrirtækið eykur einnig gegnsæi við þáttöku í slíkum aðfangakeðjum.
KOSTIR VIÐ GOTS
Kostirnir eru í raun og veru
mjög margir og eru m.a.:
- Alþjóðleg ábyrgð: GOTS-vottun er ekki eingöngu ábyrgð á uppruna vörunnar heldur einnig á ábyrgri framleiðslu við allt framleiðsluferlið,
- Samfélagsleg ábyrgð: GOTS gerir almennar kröfur um starfsvenjur innan fyrirtækja og í samfélaginu í samræmi við almenn sjálfbærniviðmið,
- Stuðningur við umhverfisstjórnun: Aðild gerir fyrirtækjum kleift að rekja notkun tilfanga og miðað við fengnar niðurstöður og grípa til aðgerða til að draga úr umhverfisáhrifum,
- Rekjanleiki: GOTS-vottun auðveldar að hafa stjórn á framleiðsluferlinu og eykur gagnsæi.
Með því að taka upp GOTS
vottunina er hægt að skipta sköpum á markaðnum OG auka verðmæti vörunnar, um
leið og umhverfið er virt.










