Payper-derhúfur: nýr stíll
Onhead er nýja línan
af derhúfum frá Payper og hefur yfir sér sígilt yfirbragð. Frumlegar en
um leið sígildar bómullarhúfur vottaðar til að veita vörn gegn útfjólublárri
geislun. Henta afar vel fyrir konur og menn en einnig fyrir smáfólkið
vörulínan býður upp á derhúfur af mismunandi gerðum til mismunandi
notkunar.
AMERICAN STYLE
Ómissandi húfur sem laða fram
skapgerð notenda og henta vel sem hálfgerð sólarvörn við íþróttaiðkanir og
tómstundir. Vörulínan er tileinkuð Bandaríkjunum, landinu sem betrumbætti
derhúfuna, gerði hana vinsæla og að einskonar tákni fyrir þjóðmenningu sína.
Litríku Onhead-derhúfurnar fást í fimm ólíkum
gerðum með derum, þar sem hver og ein húfa hefur sérsök einkenni. New
York, sem fæst einnig í gerðinni New York Youth og Denver samanstanda
af 5 lögum, á meðan Nebraska, Illinois, Minnesota og Minnesota
Youth samanstanda af 6 lögum.


EINKENNANDI HÖNNUN
Onhead-vörulínan einkennist af sveigðu og
stífu deri, samlitu eða marglitu og hægt er að velja annað hvort
riflás eða sylgju.
Derhúfurnar
frá Payper eru úr sama gæðaefni og annar fatnaður frá fyrirtækinu og hægt er að
velja úr skávefnaði eða burstuðum skávefnaði, allt eftir þörfum.
ÁBYRG FRAMLEIÐSLA UMBÚÐA
Markmiðið fyrirtækisins er að
uppfylla skuldbindingar um ábyrga framleiðslu og notar minna af plasti í
umbúðum og frekar pappír og pappi í staðinn.
Slíkt er bæði hagnýtur og umhverfisvænn kostur. Um leið fá
viðskiptavinir einstakar umbúðir sem má nota til að stilla upp og sýna
25 derhúfur.
Áhrifamikil vörulína sem byggir á traustum grunni og fylgir nýjum
tískustraumum með frumlegri hönnun og útliti.











