Vinnufatnaður með fjölhæfri vörn leikur undirstöðuhlutverk við ýmiss konar vinnu, einkum þar sem áhætta er fyrir hendi. Til að standa undir því hefur Multipro-línan í vörulista Payper verið stækkuð og nýjum þriðja flokki persónuhlífa verið bætt við, sem gerðar eru úr nýstárlegum efnum með fimmgildri og sexgildri vottun sem tryggir fullkomna vernd. Payper býður nú upp á FENCE-jakka og DEFENCE AND DEFENCE REFLEX-buxur sem nota má í sameiningu til að tryggja framúrskarandi og óviðjafnanlega vernd.

 

Hvað er vinnufatnaður með fjölhæfri vörn?

„Klæðnaður með
fjölhæfri vörn“ eða „fjölstaðlaður klæðnaður“ vísar til fatnaðar, sem vottaður
er fyrir mismunandi notkunarsvið eða sem hentar fólki sem vinnur í umhverfi
þar sem margvísleg áhætta er fyrir hendi
. Persónuhlífar af þessu tagi eru
gerðar úr eldheldu, afrafmagnandi og sýruþolnu efni með verndarvottun gegn
hitaáhrifum ljósboga
og áhættu af völdum málmsuðu og tengdri
starfsemi. Sama á við um fylgihluti sem
notaðir eru í bryddingar á klæðnaðnum.



Auk þess að tryggja hámarksvernd, svo notendur geti stundað vinnu sína með
öruggum hætti, hefur áhersla á útlit og snið ávallt einkennt klæðnaðinn frá
Payper svo notendur geta gengið að nýjustu tísku, hagkvæmni, virkni og
þægindum.

 
 

Hvaða staðlar gilda um klæðnað með fjölhæfri vörn?

Evrópulöggjöf kveður á um þau viðmið sem fjölstaðlaður vinnufatnaður verður að uppfylla út frá þeirri áhættu sem tengist tileknum störfum. Til að votta að persónuhlífarnar okkar uppfylli öryggisstaðla sér vinnustofa Payper um alla hönnun og þróun á öllum vörum út frá þessu kröfum og sér svo um að framkvæma nauðsynlegar prófanir til að hljóta vottunina. Markmiðið er ávallt að uppfylla ströngustu öryggiskröfur. Þeir staðlar, sem gilda um vinnufatnað okkar með fjölhæfir vörn, eru eftirfarandi:

FENCE-jakkinn með fjölhæfri vörn og DEFENCE REFLEX-buxurnar með fjölhæfri vörn eru líka vottaðar samkvæmt sjötta staðlinum EN 17353:2020. Báðar vörurnar eru með endurskinsborðum til að þær sjáist betur.

 

Hvernig ætti að velja MULTIPRO-klæðnað?

Payper hefur ávallt lagt sérstaka áherslu á vinnufatnað með það að markmiði að standa vörð um öryggi notenda við vinnu sína. Strax frá upphafi lagði Payper mikla áherslu á hönnun og þróun persónuhlífa með fjölhæfri vörn til þess að bæta og auka framboð okkar á sérhönnuðum og vönduðum fatnaði sem uppfyllir ströngustu alþjóðastaðla.

Þú getur skoðað úrvalið af MULTIPRO-klæðnaði í vörulista Payper í samræmi við þarfir þínar og reglur. Í línunni er að finna fóðraða og ófóðraða jakka ásamt fatnaði úr sjálflýsandi eða fastlituðum efnum.

 

Hvaða vörur býður MULTIPRO Payper upp á?

MULTIPRO-fatalínan frá Payper hefur stækkað með ófóðruðum jakka úr
afrafmagnandi og eldheldu efni, sem þolir rafboga og kemísk efni, og hentar
fullkomlega við málmsuðu. FENCE býður upp á framúrskarandi
vernd
og þægindi og viðvarandi og ákjósanlega losun á stöðurafmagni
til að tryggja hámarksöryggi í hættulegu umhverfi. Þegar hann er notaður með DEFENCE
REFLEX
-buxunum, sem eru úr sambærilegu efni með sömu eiginleikum, tryggir
hann sexgilda vernd ásamt því að sjást betur. Í sameiningu mynda þessar
vörur fullkominn einkennisfatnað.



DEFENCE-buxurnar fullkomna svo fjölskylduna, en þær eru jafnsterkar og
þægilegar og tilvaldar fyrir þá starfsmenn sem ekki þurfa á endurskinsborðum að
halda.



Allar vörur okkar með fjölhæfri vörn eru með merkimiða þar sem finna má yfirlit
yfir reglurnar, sem þær uppfylla, svo auðvelt sé að átta sig á því í hvaða
umhverfi þær henta.

 
 

Niðurstaða

Hönnun á klæðnaði með fjölhæfa vörn er fjárfesting í öryggi og vellíðan starfsmanna. Ef þú velur klæðast slíkum fatnaði velur þú mikla vörn og langvarandi þægindi. Auk þess hafa prófanir sýnt að tilteknar flíkur þola iðnaðarþvott við 75°C og heimilisþvott við 60°C. Til að viðhalda einkennum garnsins, fylgihlutanna og flíkanna í heild mælum við með því að fatnaðurinn sé ekki sérsniðinn eða honum breytt. Til að tryggja sömu vörn ætti aðeins að sérmerkja flíkurnar með því að prenta á svæði sem ekki er stærra en 10cm².

Með því að fjárfesta í vönduðum efnum og framúrskarandi verkkunnáttu getum við brugðist við þörfum alls konar starfsmanna með fullnægjandi hætti, einkum á vinnustöðum þar sem mikil áhætta er fyrir hendi. Markmið okkar er að sjá þeim fyrir vinnufatnaði sem uppfyllir þarfir þeirra með sem bestum hætti og bjóða þeim á sama tíma upp á tækifæri til að búa til raunverulegan einkennisfatnað sem uppfyllir reglur og tryggir fullkomið öryggi.

 
 

 

Aðrar blogggreinar