Nútímaleg fágun: Vandaður saumaskapur leynir sér ekki

Formal-línan frá Payper er ekki bara föt - hún er stíll. Innblásturinn fyrir línuna er viljinn til að fylla fataskápinn af sígildum og fáguðum tískufötum. Þessi einstaka lína inniheldur skyrtur og chino-buxur úr góðum efnum með vönduðum saumaskap sem heldur uppi hefðum með því að beita handverki á nýstárlegan og nútímalegan hátt.

 

Skyrtur fyrir nútímafólk: þetta er allt í smáatriðunum

Hver einasta skyrta í Formal-línunni einkennist af stíl og gæðum sem er afrakstur þess að hugað er með alúð að efnum, nútímalegu sniði og ótal smáatriðum við saumaskap. Það má með sanni segja að hér sjáist merki um handverk klæðskerans, með mótuðum krögum, 3 mm saumum, innfellingum í saumum á hliðum og nettum kragaflipum, en síðasta hnappagatið snýr lárétt. Flíkurnar eru með fíngerða perlumóðurhnappa og aðsniðnar að hálfu upp bakhliðina.

 

Florentia er lykilflík línunnar, smart og aðsniðin skyrta úr léttu, teygjanlegu popplín-efni, með ítalskan kraga og lokufellingu sem brettist inn.

Hin vandaða Taurinorum er gerð úr vönduðu 100% ofnu og lituðu tvöföldu bómullarefni, með sígildan hálf-franskan kraga, kragastuðning sem hægt er að fjarlægja og rúnnuðum ermalíningum með tveimur hnöppum svo hægt sé að stilla þær.

Romae er afslappaðri hönnun úr 100% tvíofinni og litaðri Oxford-bómull með hnepptum kraga, brjóstvasa og skásettum ermalíningum með tveimur hnöppum.

Virtute og Virtus eru úr endingargóðu popplín-efni og henta sérlega vel fyrir viðskiptavini sem vilja áberandi og hagnýtan fatnað, en þær skarta brjóstvösum og axlaspælum

 
 

Sígildar chino-buxur

Trendy, Premium og Marshal eru þrjár útgáfur af chino-buxum sem eru hannaðar fyrir nútímamanninn og má nota jafnt sem hversdagsflíkur og við formleg tilefni. Þau eru með einstökum smáatriðum á borð við mjúkt innra fóður úr 100% náttúrulegri hvítri bómull í gamaldags hönnun, þunnar 8 mm beltislykkjur og aðeins 3 mm breiðan fald á vösum. Að auki eru hálfmánalaga styrkingar á rassvösum og hnappar með dýrahornsáferð sem eru hin fullkomna blanda af útliti og hagkvæmni. Að lokum má nefna að í hverri flík eru styrkingarpinnar með skrúfulaga einkennismerki fyrirtækisins.

 

Þó að buxurnar séu mismunandi í útliti og sniði eru þær allar úr sama mjúka, teygjanlega og létta flauelsefninu. Trendy chino-buxurnar eru aðeins stílhreinni og aðsniðnari, þær mjókka niður í 17 mm neðst á skálmunum og henta sérlega vel til að setja punktinn yfir i-ið á nútímalegum hversdagsklæðnaði. Hinar tímalausu Premium eru með sígildara sniði og skarta földum vösum og krækju til að loka fyrir miðju. V-saumurinn að aftan er til marks um vandað handverkið. Loks er það Marshal, nútímaleg útgáfa af herforingjabuxum með stórum vösum sem einkennist af hagnýtri en þó fágari hönnun og skartar smáatriðum á borð við sauma að framan og framlengingu á buxnastrengnum til að auka þægindi.

 

Framúrskarandi hönnun

Glæsileiki, gæði og áhersla á smáatriði: þetta færðu í Formal-línunni frá Payper. Vörulínan er til marks um vandaðan saumaskap með úthugsuðum smáatriðum þar sem leikið er að samræmi og mismun til að skapa einstaklega fágaðar og skemmtilegar flíkur.

 
 

Valdar vörur

 

 

Aðrar blogggreinar