Better Cotton fyrir betra val
Payper
hefur ávallt verið umhugað
um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð og fyrirtækið er stoltur aðili að Better Cotton-áætluninni en það er
heimsþekkt áætlun um sjálfbæra bómullarræktun. Fyrirtækið fjárfestir í
áætluninni í því skyni að auka siðferði og gæði við framleiðsluna og
standa vörð um ræktun og heilbrigði viðkomandi landbúnaðarsamfélaga.
SKULDBINDING PAYPER: AÐ FJÁRFESTA Í BETRI FRAMTÍÐ
Fyrirtækið notar mikið af bómull í
framleiðsluvörurm sínum og þar af leiðandi hefur fyrirtækið fjárfest í áætlun
sem hefur það að markmiði að gera bómullarframleiðslu
sjálfbæra. Fyrirtækið fær tækifæri til að vinna með fjölda
aðila í aðfangakeðju bómullar um allan heim. Fjárfestingar fyrirtækisins
hafa áþreifanleg markmið: Að framleiða vörur af miklum gæðum og huga um leið
að sjálfbærni umhverfisins og samfélagslegri ábyrgð.


Slíkri skuldbindingu fylgir skilvirk notkun náttúruauðlinda og minnkun
losunar gróðurhúsalofttegunda auk þess að bæta starfsskilyrði
bómullarbænda.
Fjárfesting okkar í Better
Cotton gerir okkur kleift að rekja betur uppruna bómullarinnar og
tryggja gæði vörunnar. Þannig veitum við einnig notendum sem gera sér
grein fyrir og kunna að meta ábyrga nálgun Payper fullnægjandi gagnsæi.
Aðild að Better Cotton gerir fyrirtækinu einnig kleift að fylgjast stöðugt með
aðferðum og ferlum til að gera betrumbætur á allri aðfangakeðjunni, allt
frá bónda til viðskiptavinar.










